Karítas GRUNNSKÓLANEMI

"Hver bjargar sér sjálfur"

30.07.2007 19:20:18 / loka2804

SMÁ TILKYNNING!!!!!

Jæja gott fólk!!!

Ég er búin að komast að niðurstöðu um það hvað ég geri næsta vetur.... og finnst sumum það nú ekki voða skemmtilegt þar sem að ég er að fara flytja á Raufarhöfn. Já ég sagði rétt. Er að fara alla leið út RA.......... þar er ég að fara gerast umsjónakennari yfir 5 og 6 bekk. Ég veit að þetta er rosalega langt í burtu en samt sem áður ætla að ég að flytja í þetta litla bæjarfélag. Ég hef aldrei komið þangað og veit ekki hvernig er, en eitt sem að ég veit að þetta er svipað stórt og Bíldudalur. Ég flyt þangað í seinasta lagi 17 ágúst. Er ekki alveg komin með fasta dagsetningu. En allavega þá hlakka ég alveg fullt til að takast á við þetta nýja og spennandi verkefni.

En allaveg þá vildi ég bara deila þessu með ykkur. Ætla að hætta núna.

Svo eru það bara Eyjar um næstu helgi. Ekki leiðinlegt það:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 23:03:32 / loka2804

NÝTT BLOGG

Arrg pirruð var búið að skirfa rosa færslu hér áðan en nei það datt út þegar ég var að reyna coðu paste það arrg. Jæja þýðir ekkert að gráta það.....

 

Ég, Þóra Lind og Erna fórum og tókum þátt í vatnsbyssustríðið á seinusti helgi, vá hvað það var gaman hjá okkur. Langt síðan ég hef skemmt mér svona vel, leið eins og ég væri 10 á ný. Ég kom alveg rennandi blaut heim og það var svo þess virði:):haha::haha:

Í dag fórum við Erna, Ída María og Linda í fjölskyldu og húsdýragarðinn. Ég hef ekki farið í hann síðan ég veit ekki hvenær. Það virkaði allt svo stórt í gamla daga og miklu fleiri tæki. Það sem var skemmtilegast var tampólínið, við Erna skemmtum okkur alveg konunglega á því. Það lom meira að segja kona og bað hana Ernu vinsamlegast um að passa okkur á börnunum, ekko hoppa þau í klessu. Erna var nú ekki alveg sátt með þetta. Við vorum svo að passa okkur. Konan var pottþétt bara bitur af því hún þorði ekki á trampólínið. hehhehe

Ég er búin að taka ákvöðum með skólan, ég ætla að taka mér allavega ársfrí. Ég er bara ekki alveg tilbúin í hann ennþá. Ég er búin að vera sækja um vinnu, er ekki alveg tilbúin að segja frá því hver hún er. Kemur kannski seinna.

Núna er ég bara að bíða eftir því að Bjöggi komi á klakann. Við eigum eftir að skemmta okkur svo vel saman. Svo eru það líka EYJAR 2007 á næsta leyti. OMG hvað ég farin að hlakka til. Við Þóra erum meira að segja búnar að prufukeyra tjaldið. Það var frekar fyndin sjón að sjá okkur tjalda þessu tjaldi. EN vá hvað fortjaldið er stórt, Þóra náði að standa upprétt í því. Þá er nú mikið sagt:haha:

jæja ætla að vona að þetta takist núna

Karítas


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 63598
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 230 dögum
EYJAR 2009