Það er allt að ske..... tvö blogg á einni
vikur. Maður er bara allur að standa sig
En allavega þá er þetta búin að vera hin ágætasta
helgi. Á föstudaginn var vísindaferð í Vífilfell. Það var mjög
fróðlegt að sjá allt sem fer um þarna
Eftir vísó var farið á
Celtic og haldið áfram að skemmta sér, en það fór nú ekki eins og
við vildum. Það var einn gaur þarna sem var svo leiðinlegur að hann
var að drepa okkur. Þanngi við Lísa ákváðum bara að fara senmma
heim. Þannig djammið endaði ekki vel hjá okkur

Á laugadaginn fór ég að vinna í apótekinu. Svo um
kvöldið fórum við Sandra og fengum okkur að borðaá Reykjavík Pizza
Company held ég að það heiti. Það var rosalega gott að borða þar.
Eftir matinn fórum við til Sigurbjargar. Þar voru þær stöllur Sibba
og Guðrún að fá sér í tánna. Það má segja að skotin fóru grimt á
milli þeirra. Það var mjög mikið hlegið í þessari heimsókn
okkar
Við Sandra fórum svo á rúntinn, náðum í Olgu.
tókum nokkra laugara og svo bættist Egill í hópinn. Það er frekar
langt síðan ég hef skemmt mér svona vel. Við vorum í því líka
ruglinu
mikil hlegið. Kvöldið endaði þannig að ég var komin heim
um 4. Ég sem ætlaði að hafa rólegt kvöld yfir vídeó en raunin var
nú önnur.
Dagurinn í dag er nú bara búin að fara í
læradóm...... isssisss Næsta vika er verkefna vika, þannig að ég
ætla að vera rosa dugleg að læra.
Jæja ætla að halda áfram að hlusta á
bókmenntasögu.... jey gaman
Karítas..... eða öðru nafni
Veritas eins og ég vistí kölluð af liðinu í
ísl núna