Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér núna síðustu vikur. Það er vaknað kl. 6 farið í ræktina, skóli, læra heima, vinna og sofa. Er ekki búin að gera meira en það síðustu vikur. Búin að vera mjög róleg í djamminu. Enda þar sem að það er kreppa ná hefur maður ekki efni á því að fara á djammið um hverja helgi eins og hér áður fyrr (hljóma eins og ég sé níræð)
Annast er bara lítið að frétta. Fór upp á laugarvatn með skólanum mínum. Minn bekkur var klæddur upp eins og sjóraringar og unnum við búningakeppnina.
Í dag þarf ég að skila ritgerð um Blogg málfar. Rosa skemmtilegt efni en það var mjög erfitt að finna heimildir fyrir ritgerðina. En þetta hafðist að endanum.
Sit núna upp í skóla og er að hlusta á fyrirlestur í tölvunni og er að bíða eftir því að tími byrji.
Annars hef ég ekkert merkilegt að segja.
Karítas