Karítas GRUNNSKÓLANEMI

"Hver bjargar sér sjálfur"

28.07.2008 21:30:00 / loka2804

4 dagar í Eyjar

 

Jam og já það er komin tími á alvöru blogg.

Síðan síðast:

Fór í rosalega útilegu í Hallgeirsey og í miðri útilegu fór ég og Sigurbjörg í afmæli til hennar Kristínu Brynju og var bara gaman í því. Við stelpurnar tókum strákana í smá “kennslu” í blakiJ Skemmti mér alveg konunglega

Mamma og pabbi heldu upp á 40 ára afmæli sitt, ekki nema tveimur árum á eftir áætlun. Ég stóð mig alveg eins og hetja og hélt ræðu. Shit hvað ég var stressuð, enda var Þóra Lind dugleg að hella hvítvíni í glasið mitt fyrir ræðuna, svona rétt til að róa taugarnar.

Helgina eftir afmælið var komið að ratleiknum á Patró. Vá hvað það var gaman. Lilja stóð sig eins og hetja í skipulagningu ratleiksins. Gísli og Egil héldu svo upp á afmæli sitt um kvöldið og var það bara gaman. Alltaf gaman að djamma með Patró liðinuJ

Ákvað að vinna seinni hluta sumarfrísins míns. Fór í apótekið, alltaf gott að vinna þar. En er komin í smá sumarfrí núna fram yfir eyjar. Maður verður nú líka að undirbúa sig andlega fyrir þessa helgi. Eyjar eru um næstu helgi. Vá er búin að bíða eftir þessu síðan á mánudag eftir eyjar í fyrra. Þetta verður rosa stuð. Það eru líka svo margir að fara sem að ég þekki. Núna er það að leggja inn pöntun hjá æðri máttar um gott veðrur á næstu helgi.

 

En jæja

Ída María skrifaði
Hæ Karítas. Ég fór í fjöruna í dag og fann kuðung og líka krabbalöpp og ég fann krabbalöppina þegar ég var að labba niður hringurinn minn er bara dökkblár. Kveðja Ída María.
sibba skrifaði
gvööööð hvað ég er að kafna úr spenningi, næ ekki andanum!!! :) Hlakka til að sjá þig á föstudaginn!!!
Kristín Brynja skrifaði
Gvöð hvað ég er ekki að skilja þennan spenning en það boðar kannski bara fjör hjá okkur.....
Hlakka til að sjá þig á föstudaginn:-)
Á þjóðhátíð ég fer fer fer, þá feikna gaman er er er hihiiiihi

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 63534
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 225 dögum
EYJAR 2009