Karítas GRUNNSKÓLANEMI

"Hver bjargar sér sjálfur"

07.01.2009 23:25:32 / loka2804

Gleðilegt ár....

 

Já komið sæl og blessuð. Gleðilegt áriðJ

Ástæðan fyrir bloggleysi er leti í mér og jú próf í desember og vinna.

Árið í fyrra var nú bara eitt af því besta. Var á Raufarhöfn fyrstu 6 mánuði ársins og það var æðislegt. Mjög erfitt að keðja bekkinn minn og allt fólkið þar. Byrjaði svo í kennó og það var sú besta ákvörðun sem að ég hef tekið. Kynntist alveg frábæru fólki og byrjaði að læra það sem mér finnst skemmtilegt. Það er gott ár að bakiJ

 

En að örðu er búin með mína fyrstu önn í kennó og gekk hún bara mjög vel náði öllum prófunum og er mjög sátt við þær. Núna er næsta önn að byrja og verður hún eitthvað strembin er að fara í stærðfræði og aðferðafræði og kvíði ég ágætlega fyrir því. En ég ætla að fara með opnum huga í þessi fög og vona að allt saman gangi sem best.

Lífið gengur sinn vanagang og allt fer að komast í rútínu aftur. Ræktin, skóli, læra og vinna. Svona verða næstu mánuðir frá mér.

En jæja ég lofa ekki að ég verði dugelgir að blogga en ég ætla að reyna það allavegaJ

 

Karítas


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 17:12:37 / loka2804

Súrt blogg

  Á núna að vera að læra, á að vera að hlusta á fyrirlestur en gaurinn sem er að tala inn á þennan fyrirlestur er með svo leiðinlega talanda og svo er að hann að ræða það sem að ég veit alveg. Arrg þoli ekki svona kennara. En núna er rúmlegur mánuður í próf og shit..... ekki að nenna þessum vikum fram yfir próf. Vildi að ég gæti farið að sofa og vaknað 12 des fersk og fín. En nei.... við leggjumst víst ekki í dvala. Vá gaurinn er að tala um málvenjur og hvað sé gott mál og vont mál.

Hafið þið samt pælt í því hvernig við tölum. Er það ekki þannig að við tölum allt öðruvísi við vini okkar heldur en foreldra??? Eða er það bara ég....!!! smá pæling. Vá gaurinn fær mann bara til þess að hugsa. Það er alltaf gott eða held það....

Mikið að gera þessa vikuna, á að skila skýrslu á föstudaginn og ritgerð á mánudaginn. En þar sem að ég er svo dugleg og skipulögð þá er ég búin með þetta bæði... Er bara í yfirlestri núna. Svo er það þessi blessaða leiðarbók sem að ég þarf að fara að herða mig í. Nenni ekki að vera að vinna í henni korter fyrir skil.

Jæja ætla að fara hlusta á hann Sigurð ekki nema 15 mín eftir að þessum fyrirlesti.....

                            

Karítas

p.s sakna Raufarhafnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 09:40:45 / loka2804

Fimmtudagurinn 30. okt

Jæja þá er komið að þessu mánaðalega bloggi mínu.

Síðan síðast.  Þessi helf kreppa. Ég er komin með svo mikið ógeð á þessu krepputali. Þannig ég ætla ekki að vera pirra mig á því hér.

Ég fór á Raufarhöfn um seinustu helgi. Fór sem sagt í afmæli til Jóhönnu Daggar og á villibráðarkvöld á hótelinu. Hmm bara góður matur. Það var æðislegt að koma aftur á Raufina. Fólkið er svo frábært þarna. Ef að það hefði ekki verið að lengja þennan blessaða skóla þá hefði ég verið þarna eitt ár í viðbót. Hver veit nema að ég fari aftur eftir skóla. Ég plataði Þóru að koma með mér inn á Akureyri að heimsækja Ernu. Við lögðum í okkar ferð á fimmtudaginn og það var nú meira ævintýrið. Við sem sagt týndum Starskála. Það var enginn að segja okkur að það væri búin að færa hann.... hvað er það???? Það var mikið helgið af okkur, þar sem að við áttum að hafa keyrt framhjá honum (nýi Staðaskáli fer ekkert framhjá neinum. Rosaflott bygging) En þegar við keyrðum heim þá komumst við að þeirri niðurstöðu að við keyrðum aldrei framhjá honum. Við fórum einhverja aðra leið og við vitum ekki alveg hvaða leið við fórum. Höldum að við höfum farið gömlu leiðina. Heimleiðin tók 12 tíma hjá mér. Þar sem að ég þurfti að bíða við rætur Víkurskarðsins í 2 1/2 tíma mér til mikillar gleði og var í 1 1/2  tíma að keyra 4 km leið á Víkurskarðinu. En þetta var nú bara ævintýri. Sigtryggur stóð alveg fyrir sínu í snjónumJ Enda Toyota tákn um gæði......Ha! er þaggi Jóhanna?

Var að uppgötva það að það eru ekki nema 4 vikur í próf,  56 dagar í jólin og 274 dagar í þjóðhátíðJ. Gleði Gleði Gleði

Jæja þarf að halda þessum tíma áfram......


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 21:02:08 / loka2804

Smá grín í kreppunni....

Þetta er nýr texti við lagið söknuð með Villa Vil


Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
Og heldur blankur, því er verr
Ef væri aur hjá mér, væri ég glaður
Betur settur en ég er

Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Við gátum spreðað, gengið um,
gleymt okkur í búðunum.
Engin svör eru við stjórnarráð
Gengið saman hönd í hönd,
Saman flogið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja lán.

Horfið er nú hlutabréf og lánsfé
Í veski mínu hefur eymdin völd
Í dag ræður bara sultarólin
Nú einn ég sit um skuldavönd

Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Ég horfi yfir bankann minn
Hugsi hvort hann hleypi mér inn
Ég alltaf gat treyst á þig
Í að fjármagna mig
Ég reyndar skulda allstaðar
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.





Nýji texti við ísland er land þítt

Ísland var land mitt, ég aldrei því gleymi,
Ísland í gjaldþroti sekkur í sæ,
íslensku krónun´í banka ei geymi
við íslenska hagkerfið segi ég bæ,
Ísland í erfiðum tímum nú stendur
Íslenska stjórnin hún failar margfallt
Íslenski seðillinn er löngu brenndur
Ísland er landið sem tók af mér allt

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 19:10:30 / loka2804

Dimmur dagur fyrir Ísland

Það er allt að fara til anskotans..... langar ekki að blogga.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 19:53:55 / loka2804

Fimmtudagurinn 25. sept

 Það er alltaf þannig að þegar maður á að vera að læra þá fer maður að blogga eða gera eitthvað annað. Sit núna fyrir framan tölvuna og ætti að vera lesa sálfræði, skrifa leiðarbók, vinna í verkefni og lesa fyrir tímann sem er á morgun. En þar sem að andinn er ekki með mér núna þá er ég ekki að nenna þessu. Ég verð að vera í stuði annars læri ég ekki neitt, allavega situr ekkert eftir hjá mér. Arrrg svo pirrandi, ég hugsa bara núna æi geri þetta á sunnudaginn. Sem er ekki gott því þá þarf ég að gera allt á sunnudaginn. Sem þýðir það að það á ekki vera nein þýnnka hjá mér þá.

Er sem sagt að fara í kveðjupartý á laugardag hjá henni Írisi, hún er að fara flytja til Ítalíu í skóla. Þannig að ég ætla aðeins á fá mér í tánna þá. Er búin að vera mjög stabíl í drykkjunni þennan mánuðinn enda eru peningarnir ekki til staðar.

Er núna síðustu daga búin að vera hugsa svolítið mikið til Raufarhafnar. Sakna þessa stað ekkert smá mikið og fólksins og náttúrulega krakkanna minna í bekknum. Ég hefði svo ekkert haft á móti því að vera eitt ár í viðbót hjá þeim. Það var svo ótrúlega gott að búa þarna. En ég er nú svo heppin að ég er að fara í október í afmæli til Jóhönnu skólastjóra og á villibráðakvöld. Það verður mega stuð. Raufarhafnbúar kunna nefnilega að fá sér í tánnaJ

Jæja verð að klára að lesa þennan sálfræðikafla.

Þeir sem eiga leið sína í bæinn á laugardagskvöldið endilega bjallið í migJ


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 09:40:40 / loka2804

.........22.sept

 

Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér núna síðustu vikur. Það er vaknað kl. 6 farið í ræktina, skóli, læra heima, vinna og sofa. Er ekki búin að gera meira en það síðustu vikur. Búin að vera mjög róleg í djamminu. Enda þar sem að það er kreppa ná hefur maður ekki efni á því að fara á djammið um hverja helgi eins og hér áður fyrr (hljóma eins og ég sé níræð)

Annast er bara lítið að frétta. Fór upp á laugarvatn með skólanum mínum. Minn bekkur var klæddur upp eins og sjóraringar og unnum við búningakeppnina.

Í dag þarf ég að skila ritgerð um Blogg málfar. Rosa skemmtilegt efni en það var mjög erfitt að finna heimildir fyrir ritgerðina. En þetta hafðist að endanum.

Sit núna upp í skóla og er að hlusta á fyrirlestur í tölvunni og er að bíða eftir því að tími byrji.

Annars hef ég ekkert merkilegt að segja.

 

Karítas  


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 19:22:08 / loka2804

Skólinn byrjaður:)

 

Skólinn er byrjaður hjá mér og líst mér ekkert smá vel á þetta allt saman. Þetta er náttúrulega rosalega mikið en samt er þetta allt spennandi. Virkar allavega spennandi núna. Sjáum til eftir nokkrar vikur....er í einu fagi sem heitir þroska og námssálfræði. Það er ekkert smá heillandi en erfitt. Námsefnið er allt saman kennt á ensku. Þannig að núna þarf maður að fara dusta rykið af enskukunnáttu sinni. Það er strax komin dagsetning á ritgerð eða réttar sagt beinagrind af ritgerð. Á ég að skila henni eftir nokkra daga. Það vesta var að maður á að vinna með öðrum. Þar sem að ég þekkti ekki neinn var ég pínu kvíðin, en er búin að finna með ritgerðarfélaga og líst bara rosalega vel á hana. Ég hlakka bara til að fara takast á við öll verkefnin sem framundan eru. Og ég er líka mega heppin. Ef að ég verð svo heppin að falla ekki neitt þá þarf ég bara að taka 3 ár. Þarf ekki að taka masterinn strax. Minn árgangur er sem sagt síðasti árgangurinn í að fá að taka námið bara á þremur árum. En ég útiloka ekkert masterinn. En ég ætla nú ekki að vera með einhverjar rosa yfirlýsingar hér. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.

En að örðu. Ég átti rosalega skemmtilega síðustu helgi. Fór í afmæli til hennar Lísu og var það bílskúrspartý. Mjög kósý. Þar var mikið drukkið og talað. Eftir það var farið í bæinn og ruglað mikið....:) það eru til vídeóJ Við Þóra Lind gátum alveg skemmt okkur bara við tvær.

Laugardagurinn fór að mestu í að liggja í rúminu. En svo var ég dregin upp á rassgatinu til að fara á tjúttið. Það var mjög gaman en ekkert miðað við kvöldið áðurJ Við vöktum alveg fram undir morgun og horfði á leikinn hjá STRÁKUNUM OKKAR. Rosa ánægð með þá.

Já talandi um strákana okkar!!! Mín bara í sjónvarpinu í gær og gjörsamlega missti kúlið. Mér brá svo að sjá mig á sjánum að mér datt nú bara ekkert annað í hug en að snúa mér undan. Ekki kúl....!!!!

 

Kveðja Karítas grunnskólakennaranemiJ shit langt orð  


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2008 14:17:57 / loka2804

Mútta 17 ára

Thelma

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 19:21:01 / loka2804

Sunnudagurinn 10. ágúst

 

Jæja þá er aðal djamm helgi ársins að bak.... Það var bara klikkað í eyjum. Ég segi nú ekki annað. Það verður KLÁRLEGA farið að ári. Ef ég gæti þá myndi ég panta núna í Herjólf. Ég nenni ekki að blogga um eyjar. Þeir sem vilja fá slúður verða bara að hringja í migJ

Núna er ég að vinna á fullu og svo er það bara skólinn eftir tvær vikur. Vá eru þið að trúa þessu?? Sumarið er búið, ekki gaman það. Hvernig stendur á því að sumarið er alltaf svona fljótt að líða en restin af árinu ekki? Reyndar er þetta síðast ár gjörsamlega búið að fljúga áfram.

Fékk heimsókn áðan frá Raufarhöfn. Þóra kennari og Arnór sonur hennar og fyrrverandi nemandi minn komu í heimsókn til mín. Það var ekkert smá gaman að fá þau í heimsókn.

Já síminn minn dó út í eyjum þannig að ég er ekki með nein símanúmer. Þannig að ef þið vilduð vera svo væn að senda mér sms eða commenta, þá væri það vel þegiðJ

 

Lovísa Karítas


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 21:30:00 / loka2804

4 dagar í Eyjar

 

Jam og já það er komin tími á alvöru blogg.

Síðan síðast:

Fór í rosalega útilegu í Hallgeirsey og í miðri útilegu fór ég og Sigurbjörg í afmæli til hennar Kristínu Brynju og var bara gaman í því. Við stelpurnar tókum strákana í smá “kennslu” í blakiJ Skemmti mér alveg konunglega

Mamma og pabbi heldu upp á 40 ára afmæli sitt, ekki nema tveimur árum á eftir áætlun. Ég stóð mig alveg eins og hetja og hélt ræðu. Shit hvað ég var stressuð, enda var Þóra Lind dugleg að hella hvítvíni í glasið mitt fyrir ræðuna, svona rétt til að róa taugarnar.

Helgina eftir afmælið var komið að ratleiknum á Patró. Vá hvað það var gaman. Lilja stóð sig eins og hetja í skipulagningu ratleiksins. Gísli og Egil héldu svo upp á afmæli sitt um kvöldið og var það bara gaman. Alltaf gaman að djamma með Patró liðinuJ

Ákvað að vinna seinni hluta sumarfrísins míns. Fór í apótekið, alltaf gott að vinna þar. En er komin í smá sumarfrí núna fram yfir eyjar. Maður verður nú líka að undirbúa sig andlega fyrir þessa helgi. Eyjar eru um næstu helgi. Vá er búin að bíða eftir þessu síðan á mánudag eftir eyjar í fyrra. Þetta verður rosa stuð. Það eru líka svo margir að fara sem að ég þekki. Núna er það að leggja inn pöntun hjá æðri máttar um gott veðrur á næstu helgi.

 

En jæja


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 23:51:29 / loka2804

Þú veist að það er 2008 ef.....

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.


2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.



3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .



4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.


6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.



7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.



8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.


9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir  númer fimm.



10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.



11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 10:23:13 / loka2804

Stolið frá Hrefnu

 

Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?


Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.


Fínar dömur:
 Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.

Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.

Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara.


Fínar dömur:
 Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip..
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 18:54:05 / loka2804

Punkta blog

Síðan síðast

J    Júró kom og fór

J    Jóhanna vinkona kom til mín

J    Sjómannahelgin stóð fyrir sínu var reyndar ekki á sunnudeginum

J    Skólinn kláraðist og gekk mínum krökkum mjög vel

J    Kveðjupartý fyrir mig (sumir voru fyllri en aðrir)

J    Flutti frá Raufarhöfn

J    Aftur flutt í gamla herbergið mitt

J    Skrítið að vera flutt aftur heim

J    Náði mér í pest er enn að jafna mig

J    Gamna að hitta alla aftur

J    Er komin inn í Kennó sem þýðir að ég er að fara í skóla í haust


 
Á döfinni

J    Tvær útskriftaveislur á morgun

J    Mjög líklega djamm næstu helgar (enda verður maður að vinna upp glataðan tíma)

J    Afmæli/útskrift hjá Kristínu

J    Held áfram að vera í sumarfríi sem er mjög skrítið

J    Þarf að hugsa um systir mína á virkum dögum, mætti segja að ég væri með hana í vist (eins og í gamla daga)

J    Þrífa bílinn minn usss hann er skíturgur

J    Njóta lífsins

J    Undirbúa mig andlega fyrir skólann

J    Síðast en ekki síst Eyjar


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 19:47:00 / loka2804

Sjómannadagurinn er framundan:)

 

Jæja,

Ég var að enda við að elda 4 pizzur  ofan í bekkinn minn. Voða dugleg að mínu mati.

Þetta er sem sagt síðasta vikan í skólanum þannig að ég ákvað að vera góður kennari að bjóða krökkunum í pizzu veislu, leigði einni mynd handa þeim svona til að toppa kvöldið. Ég hlýt að vera skemmtilegasti kennarinn sem að þau hafa haft. Ég er komin með svo mikinn móral yfir því að vera að fara, þannig að ég geri í því að vera góð við þau.

Síðustu dagar hafa verið geðveikir. Það er búið að vera um 30 stiga hiti og geggjuð sól. Ég er bara búin að vera úti á palli að vinna. Enda fékk ég líka svona fallega sjómanna brúnku. Það er bara gaman af því.

Ég er enn að reyna að rembast við að byrja að setja dótið í kassa. Er bara ekki að nenna því. Maður tímir ekkert að vera inni þegar það er svona veður. En á morgun eru síðustu forvör. Þar sem að mamma og pabbi ætla að taka dótið með í bæinn eftir sjómó.

Já vel og minnst, ég er sem sagt að fara vestur núna um helginaJ Ohh það verður bara gaman. En ég er engan vegin að nenna að keyra alla þessa leið en hvað gerir maður ekki til þess að hitta alla vini og ættingja svo skemmir það ekki til að maður á aðeins eftir að fá sér í tánna um helginaJ

Jæja verð að fara koma mér heim í sturtu, ég anga eftir alla pizzugerðirnaJ


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 63598
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 230 dögum
EYJAR 2009